ÞÚ OG ÉG – STEFNUMÓT VIÐ ÞAÐ MEIRA-EN-MENNSKA
Hefur þú átt samtal við eld, tjörn eða fjall? Hefur þú hlustað á rödd heimilisins þíns eða speglað þig í bekk á torginu? Þú og ég er sviðslistaverk sem býður gestum að taka þátt í stefnumóti við það meira-en-mannska – náttúrufyrirbæri, hluti og rými sem móta daglegt líf hverrar manneskju.
Sjálfgerð Do-it-yourself sviðslist í bókarformi
Verkefnið er sett fram sem sjálfgerð sviðslist í bókaformi. Bókin inniheldur leiðbeiningar um hvernig á að framkvæma verkið og gefur þátttakanda samhengi og forsendur fyrir samtali við það-meira-en-mennska. Verkið fer fram sem röð af gjörðum, pælingum, athugunum og samtölum sem veita þátttakandanum innsýn inn í tilveru 9 fyrirbæra. Þannig stofnar þátttakandinn til sambands við bók, plöntu, lampa, samfélag fugla, tjörn, bekk, fjall, vind og eld.
Hvernig verksins er notið?
Þátttakendur framkvæma verkið á eigin forsendum, einir eða í félagi við aðra með því að fara eftir leiðbeiningum bókarinnar.
Þátttakendur framkvæma verkið með því að hugleiða leiðbeiningar bókarinnar.
Bókin er fáanlegur á völdum bókasöfnum um landið.
Bókina má kaupa í Skáldu á Vesturgötu 101 Reykjavík, á Dansverkstæðinu og í Tjarnarbíói.
Þú og ég er hluti af Fallegt, sviðslistaverkefni sem fjallar um sjálfbærni og tengsl mannsins við umhverfi sitt.
FALLEGT
Fallegt er yfirskrift tveggja sviðslistaverkefna sem fjalla um sjálfbærni og tengsl mannsins við umhverfi sitt eftir Steinunni Knúts Önnudóttur. Leiðin er performatíf pílagrímsganga og Þú og ég eru sviðsett stefnumót við hið meira-en-mennska. Verkefnið var styrkt með 12 mánaða Listamannalaunum 2025.
Erindi: Allt fyrir ástina
Á tímum vaxandi áhrifa loftslagsbreytinga og skorts á vitsmunalegum mótvægisaðgerðum er nauðsynlegt að skoða hlutverk sviðslista. Þó vandamál samtímans verði ekki leyst nema í gegnum róttækar kerfisbreytinga, þá geta listir stuðlað að því að vekja fólk til vitundar og styrkja tengsl mannsins við umhverfi sitt, hvort sem um er að ræða samskipti við annað fólk eða náttúruna sjálfa.
Til þess að við getum kosið yfir okkur kerfisbreytingar, þarf að vera til staðar knýjandi þörf sem hvetur til aðgerða. Sú þörf er kærleikur og tengsl: kærleikur til afkomenda okkar sem munu erfa jörðina og kærleikur til hins meira-en-mannlega, þ.e. fjalla, lækja, fugla og blóma. Við gerum allt fyrir ástina, og orðið “fallegt” er heilandi töfraorð sem umbreytir vonleysi í virkni.
Afleiðingar tengslaleysis, einangrunar og bergmálshella veikja getu mannsins til að bjarga sér frá glötun. Samstaða minnkar og tortryggni og grimmd býr um sig. Hér hafa sviðslistir mikilvægu hlutverki að gegna, með því að skapa og styrkja tengsl. Umbreytandi listir tala til persónulegra gilda og snerta sjálfshugmyndir okkar. Til að stuðla að breytingum þarf fólk að vita fyrir hvað það stendur og virkja kærleiksvöðvann.
Verkefnin Leiðin og Þú og ég miða að því að skapa tilvistarlegan spegil í gegnum sviðsett stefnumót sem bæði efla tengsl og veita tilefni til sjálfskoðunar. Þau eru hönnuð til að næra, róa en jafnframt styrkja gesti í viljanum til að bjarga heiminum með því að hlúa að tengslum. Verkefnunum er ætlað að skapa von og draga úr ótta og depurð yfir framtíðinni sem eru alþjóðleg plága sem herjar sérstaklega á ungt fólk.
Aðferð: Tengslaskapandi sviðsett stefnumót
Verkefnið í heild sinni byggir á doktorsverkefninu Hversu lítið er nóg? sem var unnið við leiklistarakademíuna í Malmö. Þar þróaði Steinunn aðferðir sem viðbragð við alheimsvánni, svo sem tengslaskapandi sviðssetningar sem vinna meðvitað með tengslin sem skapast í stefnumóti manna, fyrirbæra og staða í staðsértækum þátttökusýningum.
Aðferðin vinnur með þau tengsl sem skapast eða styrkjast í því sviðssetta stefnumóti sem leiksýningin er. Verkin samanstanda af þeim einstöku þáttum sem hver og einn þátttakandi dregur með sér inn í stefnumótið og eru því sértæk fyrir það einstaka í aðstæðunum, sem er fólkið, staðurinn, stundin.