VÁ!
Hvenær sagðir þú síðast vá?
VÁ! er upplifunarverk í formi sviðsettrar lautarferðar þar sem við æfum okkur í að segja vá. Við göngum saman í hæglæti, sitjum á teppi, njótum nestispakka og tökum þátt í litlum leikjum og athöfnum sem vekja athygli á því sem er til staðar og opna nýja sýn á það hversdagslega.
Undrunin býr oft í hinu smáa.
Í hraða hversdagsins gleymum við stundum að staldra við og taka eftir töfrunum sem eru geymdir í því einfalda.
Í VÁ! fléttast saman listsköpun, heimspeki og velferð og þátttakendum gefst tækifæri til að staldra við, njóta samveru og tengjast bæði sjálfum sér og umhverfi sínu. Lautarferðina er hægt að sníða að hverskyns landslagi í borg eða sveit.
Ferðin er í boði Fagurferða, andlegs ferðafélags sem skapar óvenjulegar ferðir á mörkum lista, náttúru og heimspeki.
Leiðsögukonur: Hrefna Lind Lárusdóttir, Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, Steinunn Knúts Önnudóttir
Vá! Sviðssett lautarferði í Elliðárdalnum Júní 2026