Fagurferðir kynnir tengslskapandi sviðslist í samstarfi við Dansverkstæðið.

BROTHÆTT – ÞÁTTTÖKUVERK UM ÞAÐ BROTHÆTTA OG ÓFULLKOMNA 

Verkefnið byggir á röð rítúala sem sefa tilfinningar skorts og ófullkomleika. Með því að safna saman veraldlegum og huglægum brotum og móta úr þeim nýja heild með tengslum, mildi og samkennd, upphefur verkið fegurðina í ófullkomleikanum og hefur heilandi áhrif.

Gestum er boðið að koma með brotið leirtau sem annað hvort er límt saman eða er notað í stórt mósaíkverk. Samtímis er sögum safnað um brotna hluti, brotin bein, brotnar sjálfsmyndir, brostna drauma, brotin sambönd, vinskap og hjúskap. Einnig gefst gestum tækifæri á að játa mistök sín, að fyrirgefa sjálfri sér og hvert öðru. Sögur og játningar eru skráð nafnlaust og unnið verður úr þeim hljóðverk eða flutt af kór í sviðssettum rituölum. Verkefnið er að hluta til farandverkefni með höfuðstöðvar á Dansverkstæðinu.

RITUAL I: Fjölbreytileiki ófullkomleikans
Unnið er að mósaíkverki í mynd og máli úr brotum víðs vegar að, þar sem heild verður til sem endurspeglar fjölbreytileika mannlífsins og heilunarmátt samstöðu. Unnið er út frá hugmyndafræði mandölunnar iðju sem inniber hringrásarkerfi allrar tilvistar, forgengileika og umbreytingu – hringforms sem táknar bæði heiminn og sjálfið.

Komdu með brotið leirtau og vertu með í að skapa fallegt listaverk úr brotum margra.

Deildu sögu þinni um það sem hefur brotnað í þínu lífi. Saga þín verður hluti af stóru sögusafni, hljóðverki sem hlusta má á við fullbúið mósaíkverk.

DANSVERKSTÆÐIÐ 16.FEBRÚAR – 28.MARS 2026

RITUAL II: Viðgerð hins persónulega
Einstaklingum eða pörum (vinir, fjölskylda) er boðið í náið sviðssett stefnumót við sviðshöfundinn þar sem unnið er að því að líma saman það sem er brotið. Stefnumótið er blanda af viðgerð á því áþreifanlega og því óáþreifanlega. Samtöl sem fram fara í viðgerðinni eru trúnaðarmál en hvert stefnumót getur af sér nafnlausan texta sem notaður verður í ritual III.
1. Komdu með brotið leirtau sem þér þykir vænt um svo hægt sé að líma saman brotin með gulli (kintsugi) eða með flík sem er með gati svo hægt sé að gera við með gullþræði.
2. Komdu með reynslu af huglægu broti sem þú vilt líma saman af alúð og umhyggju.

DANSVERKSTÆÐIÐ MAÍ 2026 /LAUGARDAGA OG MIÐVIKUDAGA

RITUAL III: Þér er fyrirgefið
Þér er fyrirgefið er rítúal þar sem við biðjum hvert annað fyrirgefningar á mistökum sem við teljum okkur hafa gert. Játningarnar geta verið allt frá smávægilegum yfirsjónum til stærri misgjörða. Rítúalið er framkvæmt sem víxlsöngur fyrir tvískiptan kór, þar sem játningar og fyrirgefningar hljóma á víxl.

Deildu játningu þinni á heimasíðu verkefnisins eða með því að heimsækja höfuðstöðvar, útibú Brothætt eða bóka sviðssett stefnumót við sviðshöfundinn.

Taktu þátt í flutningi ritualsins með því að skrá þig tímabundið í danskórinn.

Upplifðu flutning á verkinu á Dansverkstæðinu í Nóvember 2026 í tengslum við Reykjavík dansfestival.

DANSVERKSTÆÐIÐ NÓVEMBER 2026