Fagurferðir kynnir  í samstarfi við Dansverkstæðið.

BROTHÆTT

Þátttökuverk um það brothætta og ófullkomna 

Verkefnið byggir á röð rítúala sem sefa tilfinningar skorts og ófullkomleika. Með því að safna saman veraldlegum og huglægum brotum og móta úr þeim nýja heild með tengslum, mildi og samkennd, upphefur verkið fegurðina í ófullkomleikanum og hefur heilandi áhrif.

Gestum er boðið að koma með brotið leirtau sem annað hvort er límt saman eða er notað í stórt mósaíkverk. Samtímis er sögum safnað um brotna hluti, brotin bein, brotnar sjálfsmyndir, brostna drauma, brotin sambönd, vinskap og hjúskap. Einnig gefst gestum tækifæri á að játa mistök sín, að fyrirgefa sjálfri sér og hvert öðru. Sögur og játningar eru skráð nafnlaust og unnið verður úr þeim hljóðverk eða flutt af kór í sviðssettum rituölum.

Verkefnið er að hluta til farandverkefni með höfuðstöðvar á Dansverkstæðinu.

Höfundur verksins er Steinunn Knúts Önnnudóttir

 

 
RITUAL I - HEILUNIN

FEBRÚAR – MARS 2026 / DANSVERKSTÆÐIÐ
30.MAÍ – 14.JÚNÍ 2026 / KLÚBBUR LISTAHÁTÍÐAR Í REYKJAVÍK

Viltu sleppa tökunum á því sem ekki þjónar þér lengur?

Viltu deila því sem er brotið?

Áttu brotið leirtau?

Steinunn Knúts Önnudóttir, sviðslistakona og listrannsakandi, vinnur með gestum að sameiginlegu mósaíkverki úr brotnu leirtaui. Samtímis safnar hún nafnlausum sögum af því sem brotnað hefur í lífi fólks.

Heilunin er fyrsti af þremur rítúölum verkefnisins Brothætt, þátttökuverkefnis sem tekst á við það brothætta og ófullkomna í mannlegri tilvist og upphefur fegurðina í ófullkomleikanum.

Í Heiluninni er grunngjörðin að sleppa tökunum á því sem er brotið, rofið eða virkar ekki lengur og leyfa brotunum að öðlast merkingu í nýju samhengi, þar sem þau sameinast brotum annarra og mynda þannig stærri heild.
Brotið leirtau og persónulegar frásagnir mynda tvö lög verksins: hið áþreifanlega og hið huglæga. Sögur um brotna hluti, brotin bein, brotnar sjálfsmyndir, brostna drauma og brotin sambönd verða að hljóðverki sem mun standa samhliða hringlaga mósaíkverki sem vísar í hringrásarkerfi tilvistarinnar, forgengileika og umbreytingu. Saman renna mynd og hljóð í upplifun sem er vitnisburður um mátt tengsla og samkenndar.

Gestum er boðið að:
– koma með brotið leirtau
– koma með leirtau til að brjóta
– taka þátt í gerð mósaíksins
– eiga samtal við listamanninn
– skrá nafnlausa frásögn
– lesa inn frásögn

Viðvera listamanns á Dansverkstæðinu 23. Febrúar – 28.mars þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl.10 – 16.

Miðvikudagur 18.mars kl.19 – 21.

Utan viðverutíma listamanns verður hægt að skilja eftir leirtau og leggja til sögu á opnunartíma dansverkstæðisins og rafrænt hér.

Einnig er hægt að taka á móti smærri hópum eftir samkomulagi með því að senda tölvupóst á fallegt@fallegt.com.

RITUAL II - VIÐGERÐIN

MAÍ 2026 / DANSVERKSTÆÐIÐ

Einstaklingum eða pörum (vinir, fjölskylda) er boðið í náið sviðssett stefnumót við sviðshöfundinn þar sem unnið er að því að líma saman það sem er brotið. Stefnumótið er blanda af viðgerð á því áþreifanlega og því óáþreifanlega. Samtöl sem fram fara í viðgerðinni eru trúnaðarmál en hvert stefnumót getur af sér nafnlausan texta sem notaður verður í ritual III.

1. Komdu með brotinn hlut sem þér þykir vænt um svo hægt sé að líma saman brotin með gulli eða með flík sem er með gati svo hægt sé að gera við með gullþræði.
2. Komdu með reynslu af huglægu broti sem þú vilt líma saman af alúð og umhyggju.

Hvert stefnumót tekur um 45 mínútur.

Dansverkstæðið miðvikudagar og laugardagar 9.- 30.maí 2026.

Verð 4900 með efniskostnaði og te.

 

Bókanir á fallegt@fallegt.com

 

RITUAL III - FYRIRGEFNINGIN

Nóvember 2026

Fyrirgefningin er rítúal þar sem við biðjum hvert annað fyrirgefningar á mistökum sem við teljum okkur hafa gert. Játningarnar geta verið allt frá smávægilegum yfirsjónum til stærri misgjörða. Rítúalið er framkvæmt sem víxlsöngur fyrir tvískiptan kór, þar sem játningar og fyrirgefningar hljóma á víxl.

Deildu játningu þinni á heimasíðu verkefnisins eða með því að heimsækja höfuðstöðvar, útibú Brothætt eða bóka sviðssett stefnumót við sviðshöfundinn.

Taktu þátt í flutningi ritualans með því að skrá þig tímabundið í kór mistakanna.

Meðhöfundar Brogan Davison og Jóhanna Vala Höskuldsdóttir